Fimm leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld en tvö Íslendingalið, Amo og Karlskrona áttu leik í kvöld og sóttu bæði góða sigra. Amo tók á móti Skånela á heimavelli sínum í kvöld en Arnar Birkir Hálfdánsson var sem fyrr í liði Amo sem hafa farið vel af stað á þessu tímabili. Heimamenn voru töluvert sterkari frá upphafi til enda í kvöld og leiddu með sjö mörkum í hálfleik, 17-10. Svipað var upp á teningnum í síðari hálfleik, Amo hélt sínu striki og gestirnir náðu aldrei að ógna heimamönnum sem unnu þægilegan sjö marka sigur, 34-27. Arnar Birkir skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum og gaf eina stoðsendingu. Fyrrum markmaður FH, Phil Döhler er markmaður Amo og hann varði tólf skot í kvöld eða 32% markvarsla. Karlskrona unnu flottan heimasigur á nýliðum Lugi í kvöld, 32-30. Sigurinn var annar sigur þeirra í deildinni og þeir fara því upp úr fallsætunum eftir leiki kvöldsins. Arnór Viðarsson átti frábæran leik fyrir heimamenn og var maður leiksins. Arnór skoraði sjö mörk úr átta skotum, gaf heilar sex stoðsendingar að auki og lét finna fyrir sér í vörninni og uppskar eina brottvísun. Aðrir leikir fóru þannig að Malmö sótti góðan útisigur til Alingsås, 27-28 á meðan Hammarby vann sterkan sigur á útivelli gegn Önnereds, 29-32. Að lokum unnu Ystad þriggja marka sigur á Hallby á heimavelli, 31-28. Kristianstad eru einir á toppi deildarinnar, stigi á undan Amo og eiga leik til góða, eitt annað lið í deildinni er ósigrað með fullt hús en það eru Sävehof sem hafa tvo sigra úr fyrstu tveimur leikjum sínum. Úrslit kvöldsins: Amo 34-27 Skånela Karlskrona 32-30 Lugi Alingsås 27-28 Malmö Önnereds 29-32 Hammarby Ystad 31-28 Hallby

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.