Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla, tilkynnti í dag 20 manna hóp fyrir fyrstu tvo leiki Íslands í undankeppni EM 2028. Ísland tekur á móti Úkraínu miðvikudaginn 4. nóvember klukkan 19:30 og heimsækir síðan Eistland sunnudaginn 8. nóvember klukkan 16:00. Serbía er fjórða liðið í riðlinum. Hópurinn kemur saman mánudaginn 2. nóvember. Miðasala á heimaleikinn gegn Úkraínu er hafin á Stubb. „Staðan á hópnum er þokkalega góð fyrir utan Þorstein Leó sem er ekki kominn til baka úr sínum meiðslum,“ sagði Snorri Steinn. Viggó Kristjánsson tekur ekki þátt í leiknum gegn Úkraínu vegna leikbanns og Elliði Snær Viðarsson verður ekki með gegn Eistlandi af persónulegum ástæðum. Snorri Steinn lagði áherslu á mikilvægi þess að hefja undankeppnina vel. „Mikilvægi keppninnar er ljóst. Við ætlum okkur á öll stórmót og það er einnig mikilvægt að vinna þessa undanriðla. Það er auðvelt að segja að þetta séum við og Serbía sem erum að fara að keppast um efstu sætin í riðlinum. Því eru þessir leikir mjög mikilvægir.“ ,,Án þess að hljóma hrokafullur þá eigum við að vinna báða þessa leiki." Snorri Steinn staðfesti að þjálfarateymi íslenska landsliðsins er óbreytt frá síðasta stórmóti. Arnór Atlason, Roland Valur Eradze, Óskar Bjarni Óskarsson og Hrannar Guðmundsson eru í þjálfarateymi landsliðsins ásamt Erlends Egilssonar sálfræðings. Hópur Íslands: Markverðir Viktor Gísli Hallgrímsson – Barcelona Jón Þórarinn Þorsteinsson – FH Björgvin Páll Gústavsson – Valur Hornamenn Bjarki Már Elísson – París Saint-Germain Orri Freyr Þorkelsson – Sporting Óðinn Þór Ríkharðsson – Kadetten Schaffhausen Sigvaldi Björn Guðjónsson – Hannover-Burgdorf Útileikmenn Elvar Örn Jónsson – Magdeburg Gísli Þorgeir Kristjánsson – Magdeburg Haukur Þrastarson – Rhein-Neckar Löwen Janus Daði Smárason – Barcelona Kristján Örn Kristjánsson – Skanderborg AGF Ómar Ingi Magnússon – Magdeburg Reynir Þór Stefánsson – Melsungen Viggó Kristjánsson – Erlangen Línumenn og varnarmenn Arnar Freyr Arnarsson – Flensburg Einar Þorsteinn Ólafsson – Hamburg Elliði Snær Viðarsson – Gummersbach Jón Bjarni Ólafsson – FH Ýmir Örn Gíslason – Göppingen

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.