Hannes Pétur með tæplega 50% vörslu í sigri Gróttu
Eyjólfur Garðarsson)

Í kvöld mættust Grótta og Haukar í Grill 66 deild karla en leikið var á Seltjarnarnesi.

Gróttu menn náðu strax yfirhöndinni og leiddu leikinn á öruggan hátt í fyrri hálfleik. Hauka menn áttu í erfiðleikum með að skora lengi vel og voru hálfleikstölur 14-7 fyrir Gróttu.

Gróttu menn slökuðu ekkert á klónni í seinni hálfleik og náðu mest 13 marka forskoti. Voru þeir að leika einkar vel en Hauka menn ekki að hitta á sinn besta dag.

Lokatölur urðu 33-23 fyrir Gróttu. Þeir halda áfram á sigurbraut og hafa byrjað tímabilið frábærlega.

Hjá Gróttu var Gísli Örn Alfreðsson markahæstur með 7 mörk. Hannes Pétur var með 15 bolta varða.

Hjá Haukum var Bóas Karlsson markahæstur með 6 mörk. Ari Dignus varði 10 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top