Selfoss sterkari á lokakaflanum gegn HK
Sigurður Ástgeirsson

Selfoss vann sinn annan sigur í Olís-deild kvenna í kvöld þegar liðið lagði HK, 28–25, á heimavelli í 6. umferð. Perla Ruth Albertsdóttir var markahæst heimakvenna með átta mörk en HK var marki yfir í hálfleik, 13–12.

Leikurinn var jafn frá upphafi. Selfoss komst í 3–1 en HK jafnaði og liðin skiptust síðan á að hafa forystuna. Gestirnir náðu tveggja marka forskoti í stöðunni 12–10 en Selfoss jafnaði áður en HK skoraði síðasta mark fyrri hálfleiks.

Sama jafnræði hélt áfram eftir hlé. Selfoss komst í 16–14 en HK svaraði og náði forystunni á ný, 19–17. Heimakonur skoruðu þá þrjú mörk í röð og eftir það komst HK ekki aftur yfir.

Staðan var 22–22 þegar Selfoss náði tveggja marka forskoti. HK minnkaði muninn í 24–23 þegar rúmar fimm mínútur voru eftir en þá steig Perla Ruth upp og skoraði tvö mörk í röð. Malgorzata Trawczynska bætti við marki og kom Selfossi í 27–23. Arna Kristín Einarsdóttir skoraði síðasta mark heimakvenna áður en Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir minnkaði muninn í þrjú mörk í lokin.

Perla Ruth skoraði átta mörk fyrir Selfoss en Arna Kristín, Hulda Hrönn Bragadóttir og Trawczynska fjögur hver. Selma Þóra Jóhannsdóttir varði fjórtán skot.

Valgerður Ýr var markahæst HK með tíu mörk og Tinna Ósk Gunnarsdóttir skoraði átta. Þær gerðu því átján af 25 mörkum gestanna. Danijela Björnsdóttir varði átta skot.

Selfoss er í sjöunda sæti með fjögur stig eftir sex leiki en HK í áttunda sæti með tvö stig.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top