Valur vann öruggan tíu marka sigur á Víkingi, 41–31, í 6. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Gunnar Róbertsson var markahæstur Valsmanna með ellefu mörk en gestirnir lögðu grunninn að sigrinum með yfirburðum í fyrri hálfleik. Valsmenn tóku snemma frumkvæðið og komust í 6–2. Víkingar héldu muninum þó í þremur til fimm mörkum um skeið og staðan var 12–9 fyrir Val áður en gestirnir skoruðu níu mörk í röð og breyttu stöðunni í 21–9. Eftir það var við ramman reip að draga fyrir heimamenn. Valur skoraði alls 26 mörk fyrir hlé og hafði þrettán marka forskot í hálfleik, 26–13. Síðari hálfleikurinn var jafnari en sigur Vals var aldrei í hættu. Munurinn varð mestur fimmtán mörk, 37–22, áður en Víkingar náðu að laga stöðuna undir lokin. Heimamenn skoruðu síðustu þrjú mörkin og minnkuðu muninn í tíu mörk. Gunnar skoraði ellefu mörk fyrir Val en Bessi Teitsson bætti við fimm. Allan Norðberg og Bjarki Snorrason gerðu fjögur mörk hvor en alls komust þrettán leikmenn Vals á blað. Jens Sigurðarson varði fimmtán skot. Hjá Víkingi var Sigurður Páll Matthíasson markahæstur með níu mörk. Kristófer Snær Þorgeirsson skoraði fimm en Kristján Helgi Tómasson og Þorgeir Bjarki Davíðsson fjögur hvor. Rökkvi Pacheco Steinunnarson varði tíu skot og Daði Bergmann Gunnarsson eitt. Valur er með átta stig eftir sex leiki en Víkingur með tvö stig eftir fimm töp og einn sigur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.