Í kvöld mættust Fram 2 og HK 2 í Grill 66 deildinni en leikið var í Lambhaga höllinni. Á fyrstu mínútunum var leikurinn jafn en HK fóru svo fljótlega að síga fram úr. Komust þeir meðal annars í 5-10 og svo 5-16 stuttu seinna. Framarar engan veginn að finna sig. Hálfleikstölur voru svo 12-18. Í seinni hálfleik var leikurinn bara einstefna. HK-ingar kláruðu leikinn afar sannfærandi og unnu 23-36. Hjá Fram 2 var Alex Unnar Hallgrímsson markahæstur með 8 mörk. Heiðar Berg varði 10 skot. Hjá HK 2 var Bjarki Freyr Sindrason markahæstur með 9 mörk. 3 markmenn vörðu samtals 16 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.