Dagur stórkostlegur þegar ÍBV sneri taflinu við
Egill Bjarni Friðjónsson

ÍBV vann sex marka sigur á Þór, 37–31, í 6. umferð Olís-deildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld. Dagur Arnarsson fór fyrir sóknarleik Eyjamanna með tólf mörk en ÍBV var marki yfir í hálfleik, 17–16.

Þórsarar byrjuðu betur og komust í 6–2. Gestirnir héldu frumkvæðinu lengst af fyrri hálfleik og voru meðal annars fjórum mörkum yfir í stöðunni 12–8. Eyjamenn svöruðu með fjórum mörkum í röð og jöfnuðu metin áður en þeir náðu forystunni í fyrsta sinn í stöðunni 16–15.

ÍBV hélt síðan áfram að bæta við forskotið eftir hlé og komst í 24–19. Þór minnkaði muninn í tvö mörk, 24–22 og 25–23, en heimamenn náðu aftur góðu taki á leiknum. Þeir komust í 30–24 og hleyptu gestunum ekki nær en fjórum mörkum það sem eftir lifði leiks.

Dagur var langmarkahæstur Eyjamanna með tólf mörk en Anton Frans Sigurðsson og Magnús Dagur Jónatanssonskoruðu fimm mörk hvor. Daníel Þór Ingason og Sveinn José Rivera bættu við fjórum mörkum hvor.

Hjá Þór var Hafþór Már Vignisson markahæstur með sex mörk. Bertram Simonsen og Hákon Ingi Halldórssonskoruðu fimm hvor og William Skovager fjögur.

ÍBV er í sjötta sæti deildarinnar með sex stig eftir sex leiki en Þór í áttunda sæti með fjögur stig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top