Handboltagoðsögnin grét þegar hún var færð út í horn
Sameer Al-Doumy / AFP)

Norska handboltagoðsögnin Camilla Herrem hefur átt stórkostlegan feril sem vinstri hornamaður en í viðtali við Handknattleikssamband Evrópu (EHF) rifjar hún upp að hún hafi alls ekki viljað leika í horninu þegar hún var yngri.

Herrem, sem er 40 ára gömul og leikur með Sola í Noregi, er ein sigursælasta handboltakona sögunnar. Hún vann alls sautján verðlaun með norska landsliðinu, þar af ellefu gullverðlaun, áður en hún lagði landsliðsskóna á hilluna eftir Evrópumótið 2024.

Í viðtalinu segir Herrem frá því þegar hún var sextán ára gömul og lék í stöðu leikstjórnanda hjá Sola. Þjálfari liðsins ákvað þá að færa hana út í horn, nokkuð sem henni leist alls ekki á.

„Ég grét svo mikið þegar ég þurfti að fara út í horn,“ segir Herrem og hlær þegar hún rifjar atvikið upp. Hún hafði verið vön því að stjórna sóknarleiknum og vera mikið með boltann. Í horninu fannst henni hins vegar lítið að gera.

„Ég man að ég fór heim til mömmu og pabba og sagði þeim að ég hefði þurft að spila í horninu. Ég sagðist ekki geta verið þar, það væri ekkert að gera,“ segir Herrem.

Hún viðurkennir að fyrstu skrefin í nýju stöðunni hafi verið erfið. Hún kunni lítið að skjóta úr horninu og skotin enduðu ýmist beint í markverðinum eða fram hjá markinu. Smám saman náði hún þó tökum á stöðunni og áttaði sig á því að hraðinn hennar gæti nýst vel, bæði í horninu og í hraðaupphlaupum.

Herrem gekk síðar til liðs við Byåsen og fékk skömmu síðar sitt fyrsta tækifæri með norska landsliðinu. Þar hófst ferill sem gerði hana að einni þekktustu hornakonu handboltasögunnar.

Í viðtalinu segir Herrem einnig frá því hversu mikla vinnu hún leggur í undirbúning fyrir leiki. Hún horfir meðal annars á síðustu þrjá leiki markvarða andstæðinganna og skoðar sérstaklega hvernig þeir verjast skotum úr horninu og hraðaupphlaupum.

Á leikdegi hefur hún síðan þann sið að vera ein eftir í búningsklefanum, hlusta á tónlist og sjá fyrir sér mismunandi skot gegn markverðinum sem hún er að fara að mæta. Herrem segir mikilvægt að leikmenn þori að taka áhættu og séu ekki hræddir við að mistakast.

„Ef þú ert ekki tilbúin að taka síðasta skotið á síðustu sekúndunni, þá átt þú ekki að vera inni á vellinum,“ segir Herrem.

Herrem lék 332 landsleiki fyrir Noreg og skoraði 951 mark. Hún vann meðal annars tvenn gullverðlaun á Ólympíuleikum, þrjá heimsmeistaratitla og sex Evrópumeistaratitla.

Þrátt fyrir að hafa upphaflega grátið yfir því að vera færð út í horn varð sú ákvörðun upphafið að einum glæsilegasta ferli hornamanns í sögu handboltans.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top