Fyrirhugaðar skattabreytingar í Ungverjalandi gætu haft veruleg áhrif á fjárhag stærstu handboltafélaga landsins. Félög á borð við Veszprém, Pick Szeged og Győr gætu þurft að endurskoða launamál sín og samninga við leikmenn ef áform nýrrar ríkisstjórnar ganga eftir. Franski handboltamiðillinn HandNews hefur fjallað ítarlega um mögulegar afleiðingar breytinganna en þær tengjast nýrri stefnu ríkisstjórnar Péters Magyar í skattamálum og fjármögnun íþrótta. Í Ungverjalandi hafa atvinnuíþróttamenn getað nýtt sér sérstakt skattkerfi þar sem tekjur upp að 500 milljónum ungverskra forinta á ári falla undir hagstæðari skattlagningu. Nú stendur til að lækka það hámark niður í 60 milljónir forinta frá ársbyrjun 2027. Breytingarnar gætu haft mikil áhrif á tekjuhæstu leikmenn ungversku stórliðanna og aukið kostnað félaganna við að halda þeim á núverandi launakjörum. HandNews tekur danska landsliðsmarkvörðinn Emil Nielsen hjá Veszprém sem dæmi. Miðillinn reiknar út að ef Nielsen væri með 50 þúsund evrur í mánaðarlaun gætu breytingarnar þýtt um 80 þúsund evra aukna skattbyrði á ári miðað við gefnar forsendur. Tekið er sérstaklega fram að launatölurnar séu áætlaðar og að útreikningurinn sýni aðeins mögulegar afleiðingar skattabreytinganna. Ekki liggur fyrir hvort aukinn kostnaður myndi falla á leikmennina sjálfa eða félögin. Málið snýst þó ekki eingöngu um skattlagningu leikmanna. Ný ríkisstjórn hefur einnig boðað endurskoðun á því hvernig fyrirtæki geta styrkt íþróttafélög með skattalegum ívilnunum. Slíkt kerfi hefur um árabil verið mikilvægur þáttur í fjármögnun ungverskra íþrótta. HandNews bendir á að Veszprém gæti verið sérstaklega viðkvæmt fyrir breytingunum vegna tengsla helstu fjárhagslegra bakhjarla félagsins við fyrrverandi ríkisstjórn Viktors Orbán. Enn hefur þó ekki verið ákveðið hvernig allar breytingarnar verða útfærðar og því er óljóst hversu mikil áhrif þær munu hafa á rekstur handboltafélaganna. Ljóst er hins vegar að breytingar á skattkerfinu gætu haft áhrif á samkeppnisstöðu ungversku stórliðanna á evrópskum félagaskiptamarkaði.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.