Lettneska stórskyttan Dainis Kristopans yfirgefur þýska úrvalsdeildarliðið Melsungen næsta sumar þegar samningur hans við félagið rennur út. Melsungen hefur þegar samið við Svíann Erik Persson sem kemur frá Göppingen og tekur við stöðu Kristopans í liðinu. Melsungen staðfesti félagaskiptin í gær en Persson hefur skrifað undir samning við félagið til sumarsins 2029. Kristopans, sem er 36 ára gamall og 2,15 metrar á hæð, hefur leikið með Melsungen frá árinu 2023. Hann hefur á löngum ferli meðal annars leikið með Vardar, PSG og Füchse Berlin og varð Evrópumeistari með Vardar árið 2019. Persson er 28 ára örvhent skytta sem hefur leikið með Göppingen undanfarin ár. Hann hefur skorað 350 mörk í 115 leikjum í þýsku Bundesligunni og verður ætlað að fylla skarð Kristopans. Svíinn mun leika í hægri skyttustöðunni ásamt Dananum Nikolaj Enderleit, sem framlengdi nýverið samning sinn við Melsungen til ársins 2029. Miklar breytingar eru fram undan hjá Melsungen næsta sumar en Jaron Siewert tekur þá við þjálfun liðsins. Reynir Þór Stefánsson er einnig á mála hjá þýska félaginu. Melsungen hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu vegna óvissu um framtíð þýska landsliðsfyrirliðans Johannes Golla, sem vill yfirgefa félagið og snúa aftur til Flensburg þrátt fyrir að hafa aðeins gengið í raðir Melsungen síðasta sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.