Handknattleiksdeild Víðis hefur samið við línumanninn, Guðmund Þóri Sigurðsson, betur þekktan sem Framsóknarmanninn, og mun hann leika í bláu treyjunni í Garði út tímabilið 2027. "Gummi" kemur til liðsins eftir smá pásu frá handbolta en hann er uppalinn hjá Val en eldri bróðir hans, Valdimar Sigurðsson lék á sínum tíma með Val, Fram og Gróttu. ,,Hann er stór og sterkur leikmaður sem mun styrkja hópinn verulega. Hann hefur fengið viðurnefnið Framsóknarmaðurinn," segir í tilkynningunni frá Víði. „Það verður að styðja landsbyggðina,“ sagði Guðmundur er hann var spurður að því afhverju hann valdi að spila fyrir Víði.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.