Jacobsen svartsýnn á þátttöku Jørgensen á HM
BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP

Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Danmerkur í handbolta, telur meiri líkur en minni á að línumaðurinn Lukas Jørgensen missi af heimsmeistaramótinu í janúar. Jørgensen glímir enn við afleiðingar alvarlegra hnémeiðsla og þarf meiri tíma til að jafna sig.

Jacobsen þarf að vera án nokkurra þekktra leikmanna í komandi leikjum danska landsliðsins gegn Spáni og Sviss í EHF Euro Cup.

Þar á meðal er línumaðurinn Lukas Jørgensen, sem er enn að jafna sig eftir alvarleg hnémeiðsli.

Endurhæfingin hefur tekið tíma og nú eru einnig komnar upp efasemdir um hvort Jørgensen nái að verða leikfær fyrir heimsmeistaramótið í janúar.

Í samtali við danska miðilinn Ekstra Bladet segir Jacobsen að útlitið sé ekki gott varðandi þátttöku Jørgensen á HM.

„Lukas þarf enn að hvíla sig. Krossbandið hans þarf tíma og því tel ég meiri líkur á að Lukas verði ekki með heldur en að hann verði með. En ég veit að hann er enn að leggja mjög hart að sér til að ná því,“ sagði Nikolaj Jacobsen.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top