Fékk tveggja leikja ann fyrir sparkið í Knorr
UWE ANSPACH /AFP

Jovica Nikolić, leikmaður króatíska stórliðsins Zagreb, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann í Evrópukeppnum eftir gróft brot á þýska landsliðsmanninum Juri Knorr í leik Zagreb gegn Álaborg í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku.

Atvikið átti sér stað í síðari hálfleik þegar Nikolić sparkaði í klof Knorr og fékk í kjölfarið beint rautt spjald eftir myndbandsskoðun dómara.

Sjáðu þegar leikmaður Zagreb sparkaði í klofið á Knorr

Aganefnd Handknattleikssambands Evrópu, EHF, tók málið til skoðunar og hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að brotið hafi verið sérstaklega gróft og hættulegt. Nikolić hefur því verið úrskurðaður í tveggja leikja bann og missir af næstu tveimur leikjum Zagreb í Meistaradeild Evrópu.

Zagreb mætir Paris Saint-Germain á morgun, miðvikudag, áður en liðið leikur gegn Celje 28. október. Álaborg vann leikinn 34-33 í miklum spennuleik þar sem Knorr skoraði sex mörk fyrir danska liðið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top