Þórsarar eru komnir áfram í Powerade bikarnum
Egill Bjarni Friðjónsson

Þór Akureyri er síðasta liðið til að tryggja sér sæti í næstu umferð bikarsins en liðið vann ÍBV 2 í Vestmannaeyjum í leik sem var að ljúka í Eyjum en Þór er að spila sinn annan leik í eyjum á innan við sólarhring. Staðan í hálfleik var jöfn 14-14 en Þór steig upp í seinni hálfleik og vann leikinn með þremur mörkum, 27-30.

Atkvæðamestur í liði ÍBV 2 var Agnar Smári Jónasson en hann skoraði tólf mörk í dag. Garðar Benedikt Sigurjónsson skoraði fjögur og aðrir minna.

Bertram Simonsen var markahæstur í liði Þórs en hann skoraði sex mörk. Hafþór Már Vignisson og Mikkel Bak Scheumann Jensen skoruðu báðir fimm mörk.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top