Jökull Blöndal með 14 mörk í sigri ÍR
Sævar Jónasson

Víkingur 2 og ÍR mættust í Grill 66 deild karla en leikið var í Virkinu.

ÍR-ingar tóku strax frumkvæðið og voru mun betri í fyrri hálfleik. Leiddu þeir lengst af með 3-6 mörkum.

Hálfleikstölur voru 16-22.

Í seinni hálfleik gáfu þeir enn meira í. Náðu þeir mest 9 marka forskoti og urðu lokatölur 32-41.

Hjá ÍR var Jökull Blöndal Björnsson markahæstur með 14 mörk. Andri Snær Sigmarsson varði 14 skot.

Hjá Víking var Benedikt Emil markahæstur með 8 mörk. Kristján og Daði vörðu samtals 16 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top