Fram og FH mættust í Olís deild karla í leik sem var að ljúka í Úlfarsárdalnum. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en staðan var 16-17 í hálfleik fyrir gestina í Fimleikafélagi Hafnarfjarðar. FH komu vel sterkir inn í síðari hálfleikinn og lönduðu að lokum átta marka sigri, 28-36. FH er eftir sigurinn í þriðja sæti deildarinnar þriðja sæti deildarinnar með níu stig. Fram er í áttunda með fjögur stig. Atkvæðamestir í liði Fram voru Marel Baldvinsson og Haukur Ingi Hauksson báðir með sex mörk. Theodór Sigurðsson skoraði fimm og aðrir minna. Atkvæðamestur í liði gestanna var Ómar Darri Sigurgeirsson en hann fór á kostum í liði FH og skoraði ellefu mörk. Einar Rafn Eiðsson skoraði fimm. Jakob Martin Ásgeirsson og Jón Bjarni Ólafsson skoruðu fjögur og aðrir minna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.