Í dag mættust Víðir og Selfoss 2 í Grill 66 deild karla en leikið var í Garðinum á Suðurnesjum. Selfyssingar voru í bílstjórasætinu allan fyrri hálfleikinn. Leiddu þeir frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu í fyrri hálfleik. Var munurinn oftast 3-5 mörk. Hálfleikstölur voru 14-17. Í seinni hálfleik voru Víðismenn aldrei líklegir til að jafna leikinn. Selfyssingar náðu mest 11 marka forskoti og voru í miklum ham. Lokatölur 26-36 fyrir Selfoss. Hjá Selfossi var Ragnar Hilmarsson markahæstur með 9 mörk. Ísak og Garðar vörðu samtals 17 skot. Hjá Víði voru Guðmundur Þórir Sigurðsson og Tymon Pinto markahæstir með 9 mörk. Markvarslan hjá Víði skilaði samtals 15 boltum. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.