Ótrúlegt atvik átti sér stað í leik Álaborgar og HC Zagreb í Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöldið þegar Jovica Nikolić, leikmaður króatíska liðsins, sparkaði í klofið á þýska landsliðsmanninum Juri Knorr. Mikil læti brutust út í kjölfarið og Nikolić fékk að líta rauða spjaldið. Atvikið átti sér stað á 46. mínútu leiksins þegar Álaborg var með fjögurra marka forskot, 26-22. Knorr var að reyna að brjótast í gegnum vörn Zagreb þegar hann mætti Nikolić og Petar Topić. Á myndskeiði frá leiknum má sjá Nikolić fyrst reyna að hitta Knorr með hnénu áður en hann sparkar með vinstri fæti í klofið á þýska landsliðsmanninum. Knorr féll samstundis í gólfið og mikill hiti færðist í leikmenn beggja liða. Hollensku dómararnir William Weijmans og Rick Wolbertus ákváðu að skoða atvikið á myndbandi og í kjölfarið sýndu þeir Nikolić beint rautt spjald. Þetta var annað rauða spjaldið sem Zagreb fékk í leiknum en Stanislau Sadouski hafði áður verið rekinn af velli í fyrri hálfleik eftir gróft brot á Thomas Arnoldsen. Álaborg vann að lokum nauman sigur, 34-33, í leik sem einkenndist af mikilli hörku. Knorr skoraði sex mörk í leiknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.