Miklir yfirburðir hjá Val á móti Hvíta Riddaranum
Lárus Wöhler

Í dag mættust Hvíti Riddarinn og Valur 2 í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Mosfellsbæ.

Valsarar byrjuðu strax mun betur og komust í 0-4. Fljótlega eftir það fóru þeir í 4-13. Miklir yfirburðir hjá Völsurum. Í hálfleik var staðan 9-22.

Í seinni hálfleik náðu Valsarar mest 18 marka forskoti. Ótrúlegir yfirburðir.

Í lið Hvíta Riddarans vantaði nokkra leikmenn í dag og sást það bersýnilega.

Lokatölur urðu svo 28-38 fyrir Val.

Hjá Val var Kári Steinn Guðmundsson og Sigurður Atli Ragnarsson markahæstir með 9 mörk. Anton Máni og Arnór Flóki vörðu samtals 19 skot.

Hjá Hvíta Riddaranum var Adam Örn Guðjónsson markahæstur með 7 mörk. Eyþór og Bergvin vörðu samtals 10 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top