Krickau vill breyta félagaskiptareglunum
Frank Hoermann /AFP

Nicolej Krickau, þjálfari og íþróttastjóri þýska stórliðsins Füchse Berlin, vill að breytingar verði gerðar á félagaskiptareglum í handbolta. Ummæli hans koma í kjölfar mikillar umræðu um framtíð þýska landsliðsfyrirliðans Johannes Golla hjá Melsungen.

Golla gekk til liðs við Melsungen frá Flensburg í sumar en hefur þegar lýst yfir vilja til að snúa aftur til síns gamla félags. Málið hefur vakið mikla athygli í Þýskalandi og orðið til þess að fyrirkomulag félagaskipta í handbolta hefur verið tekið til umræðu.

Krickau telur að núverandi kerfi, þar sem leikmenn semja gjarnan við ný félög löngu áður en þeir skipta um lið, sé ekki heppilegt. Hann er þó ekki sannfærður um að sérstakur félagaskiptagluggi, líkt og tíðkast í knattspyrnu, sé rétta lausnin.

Þess í stað hefur Krickau nefnt þann möguleika að félögum verði ekki heimilt að hefja samningaviðræður við leikmenn annarra félaga fyrr en sex mánuðir eru eftir af gildandi samningi þeirra.

Ummæli Krickau koma í kjölfar þess að Uwe Schwenker, forseti þýsku Bundesligunnar, staðfesti að mögulegar breytingar á félagaskiptareglum yrðu teknar til umræðu hjá stjórn deildarinnar.

Golla-málið gæti breytt félagaskiptareglum í Þýskalandi

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top