Golla-málið gæti breytt félagaskiptareglum í Þýskalandi
ANDRZEJ IWANCZUK /AFP

Félagaskiptamálið í kringum þýska landsliðsfyrirliða Þjóðverja, Johannes Golla gæti haft mun víðtækari afleiðingar en áður var talið. Uwe Schwenker, forseti þýsku Bundesligunnar, vill að skoðað verði hvort taka eigi upp sérstaka félagaskiptaglugga í handbolta, líkt og tíðkast í knattspyrnu.

Golla gekk til liðs við MT Melsungen frá Flensburg síðasta sumar eftir að hafa skrifað undir samning við félagið í desember 2024. Hann hefur hins vegar óskað eftir því að fá að snúa aftur til Flensburg af fjölskylduástæðum, aðeins nokkrum mánuðum eftir komuna til Melsungen.

Málið hefur vakið mikla athygli í þýska handboltanum og nú hefur forseti Bundesligunnar blandað sér í umræðuna.

Schwenker segir í samtali við Sport Bild að ástæða sé til að endurskoða núverandi fyrirkomulag félagaskipta, þar sem leikmenn geti samið við ný félög mörgum árum áður en þeir ganga til liðs við þau. Á þeim tíma geti ýmislegt breyst, bæði hvað varðar fjölskylduaðstæður og persónulega hagi leikmanna.

Schwenker hyggst taka málið upp á stjórnarfundi Bundesligunnar í næstu viku þar sem rætt verður hvort rétt sé að innleiða sérstaka félagaskiptaglugga.

Stefan Kretzschmar, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands og einn þekktasti handboltasérfræðingur landsins, hefur einnig gagnrýnt þróunina þar sem félagaskipti eru ákveðin langt fram í tímann.

Golla er samningsbundinn Melsungen til ársins 2031 en framtíð hans hjá félaginu er nú í óvissu.

Holger Glandorf, framkvæmdastjóri Flensburg, sagði um helgina að hann sæi ekki fyrir sér að Golla myndi snúa aftur til félagsins á yfirstandandi tímabili. Málið gæti því ekki aðeins haft áhrif á framtíð Golla heldur einnig á hvernig félagaskiptum verður háttað í þýska handboltanum á næstu árum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top