Þjálfari Vals kallar eftir betri mætingu
Baldur Þorgilsson

Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari karlaliðs Vals, kallar eftir öflugum stuðningi áhorfenda þegar liðið tekur á móti ungverska liðinu Tatabánya í 3. umferð Evrópudeildarinnar í kvöld. Ágúst telur að Valur eigi möguleika á að leggja ungverska liðið að velli en segir að til þess þurfi allt að ganga upp.

Leikurinn hefst klukkan 18:45 og fer fram í Valsheimilinu. Leikurinn er einnig sýndur í beinni á Livey.

Valur er með tvö stig eftir fyrstu tvær umferðir riðlakeppninnar. Valsmenn unnu góðan heimasigur á danska liðinu Mors-Thy í fyrstu umferðinni en töpuðu síðan á útivelli gegn Slovan í Slóveníu. Tatabánya er hins vegar án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Ágúst Þór ber mikla virðingu fyrir ungverska liðinu og segir það búa yfir mikilli reynslu og líkamlegum styrk.

„Þeir hafa á að skipa feikilega öflugu liði. Þetta er gríðarlega reynslumikið lið og eru með fimm A-landsliðsmenn og einn fyrrverandi landsliðsmann. Við erum að mæta reynslumiklu og líkamlega sterku liði sem er með sterkar skyttur. Til að mynda Bodo sem hefur reynst íslenska landsliðinu oft erfiður og síðan eru þeir með rúmenska hægri skyttu og ísraelskan landsliðsmann.“

Ágúst segir að Valsmenn þurfi að vera sérstaklega vel undirbúnir fyrir öflugar skyttur ungverska liðsins.

„Sóknarleikur þeirra gengur rosalega mikið upp á klippingar og eitthvað sem við ættum að þekkja úr ungverskum handbolta. Við þurfum að vera þéttir og massívir í miðri vörninni og tilbúnir að mæta þessum skyttum. Þetta eru alvöru bombur.“

Þjálfari Vals telur að hraðinn geti orðið eitt helsta vopn sinna manna gegn stóru og þungu liði Tatabánya.

„Varnarlega spila þeir 6-0 og eru frekar þéttir og ekkert rosalega aggressívir. Við þurfum að vera yfirvegaðir þar og teygja á þeim í byrjun sóknar. Við þurfum einnig að ná upp góðu tempói svo við eigum meiri möguleika á að vinna stöðurnar maður á móti manni.“

„Á sama tíma verðum við að taka skotin okkar þegar tækifæri gefst. Við þurfum að vera duglegir að keyra á þá, hvort sem það er eftir að við vinnum boltann eða með hraðri miðju. Þeir eru stórir og þungir og þar liggja tækifæri okkar.“

Ágúst leggur þó áherslu á að verkefnið verði afar krefjandi. „Þetta er frábært lið og við þurfum algjöra toppframmistöðu.“

Ágúst Þór vill jafnframt sjá fleiri stuðningsmenn mæta á Hlíðarenda en gerðu í fyrsta heimaleik liðsins í Evrópudeildinni gegn Mors-Thy.

„Við þurfum að fá alvöru mætingu á Hlíðarenda. Hún var allt í lagi gegn Mors-Thy en ekkert meira en það. Við þurfum að fá fleiri áhorfendur í kvöld til að styðja okkur og hvetja okkur áfram í þessum leik. Það yrði virkilega öflugt ef við myndum ná í okkar annan sigur í þessum riðli.“

Hann segir mikilvægt að Valur nýti heimavöllinn vel í jafnsterkum riðli og telur að góð stemning í húsinu geti skipt sköpum.

„Það er stór munur á að spila heima eða á útivelli í þessari keppni og við þurfum að nýta okkar heimaleiki vel. Með góðum stuðningi áhorfenda og alvöru stemningu er ég sannfærður um að við getum lagt þetta lið að velli en það þarf margt að ganga upp svo það takist,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top