Jim Gottfridsson verður ekki í landsliðshópi Svíþjóðar fyrir komandi leiki í undankeppni Evrópumótsins í nóvember, samkvæmt heimildum sænska miðilsins Sportbladet. Michael Apelgren, landsliðsþjálfari Svíþjóðar, tilkynnir landsliðshóp sinn síðar í dag en Svíar mæta Grikklandi og Lúxemborg í undankeppni EM. Gottfridsson, sem er 34 ára gamall, hefur verið einn af lykilmönnum sænska landsliðsins undanfarinn áratug en framtíð hans með landsliðinu virðist nú í óvissu. Gottfridsson yfirgaf ungverska stórliðið Pick Szeged á síðasta tímabili eftir að samningi hans við félagið var rift við óvenjulegar aðstæður. Hann ákvað í kjölfarið að snúa aftur til uppeldisfélags síns, IFK Ystad, sem leikur í næstefstu deild Svíþjóðar. Þrátt fyrir að Gottfridsson hafi farið mikinn með Ystad á tímabilinu virðist það ekki duga honum til að halda sæti sínu í landsliðinu. Gottfridsson hefur áður lýst því yfir að hann stefni á að leika með Svíþjóð á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 2028. Samkeppnin um stöðurnar í sænska landsliðinu er hins vegar mikil og hafa ungir leikmenn á borð við Nikola Roganovic og Axel Månsson vakið athygli með frammistöðu sinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.