Grótta og Hvíti Riddarinn mættust í kvöld í Grill 66 deild karla en leikið var á Nesinu. Gróttu menn byrjuðu mun betur og komust í 4-0. Leiddu þeir allan fyrri hálfleikinn og juku forskotið smátt og smátt. Gengu þeir loks til búningsherbergja með 8 marka forskot. 16-8 voru hálfleikstölur. Í seinni hálfleik stigu Gróttu menn bara ennþá meira á bensíngjöfina og komust mest í 15 marka forskot. Lokatölur voru 36-21. Hjá Gróttu var Ásgeir Bragi Bryde markahæstur með 9 mörk. Hannes Pétur og Þórður Magnús vörðu 16 skot. Hjá Hvíta Riddaranum var Leó Halldórsson markahæstur með 6 mörk. Bergvin Snær varði 8 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.