Rúnar leitar að liðsstyrk vegna meiðsla vandræða
JAN WOITAS / dpa Picture-Alliance via AFP)

Þýska Bundesligufélagið HSG Wetzlar hefur hafið leit að nýjum leikmanni eftir að í ljós kom að tyrkneski landsliðsmaðurinn Doruk Pehlivan verður frá keppni næstu þrjá mánuði hið minnsta. Þá ríkir enn óvissa um hvenær Jona Schoch getur snúið aftur eftir heilahristing.

Þjálfari Wetzlar er Rúnar Sigtryggsson en liðið situr á botni þýsku Bundesligunnar með tvö stig að loknum átta leikjum. Wetzlar hefur glímt við mikil meiðslavandræði í upphafi tímabilsins og hefur ekki enn tekist að tefla fram sínum sterkasta leikmannahópi í einum einasta keppnisleik.

Liðið er enn í leit af sínum fyrsta sigri en liðið hefur gert tvö jafntefli og tapað sex leikjum. Næsti leikur liðsins er á heimavelli gegn Erlangen á fimmtudaginn en þar leika Íslendingarnir Viggó Kristjánsson og Óli Mittún með gestunum.

Pehlivan meiddist á ökkla á lokaæfingu liðsins fyrir leik gegn Rhein-Neckar Löwen. Nánari rannsóknir leiddu í ljós að hann hafði slitið liðband milli sköflungs og dálks og þurfti að gangast undir aðgerð. Aðgerðin fór fram í Frankfurt á fimmtudaginn og er reiknað með að Pehlivan verði frá keppni í að minnsta kosti tólf vikur.

Þá hefur Jona Schoch verið frá keppni eftir að hafa fengið heilahristing í leik gegn Lemgo fyrr á tímabilinu. Endurhæfing Schoch hefur ekki gengið sem skyldi og hefur hann orðið fyrir nokkrum bakslögum. Félagið treystir sér því ekki til að gefa upp hvenær hann geti snúið aftur til æfinga og keppni.

Michael Allendorf, framkvæmdastjóri íþróttamála hjá Wetzlar, staðfestir að félagið sé farið að skoða möguleikann á að fá nýjan leikmann til liðsins.

„Langvarandi fjarvera Doruk er auðvitað mikið áfall fyrir okkur. Þar að auki vitum við enn ekki hvenær Jona verður aftur tiltækur. Þess vegna erum við að skoða leikmannamarkaðinn af mikilli alvöru og kanna hvort mögulegt sé að fá leikmann með skömmum fyrirvara sem getur hjálpað okkur strax,“ segir Allendorf í tilkynningu félagsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top