Lét eftirlitsmanninn heyra það – Ef þú tilkynnir þetta þá slátra ég þér
Egill Bjarni Friðjónsson

Jesper Holm, framkvæmdastjóri danska úrvalsdeildarliðsins Ribe-Esbjerg, hefur verið sektaður fyrir að hafa haft í hótunum við eftirlitsmann eftir bikarleik liðsins gegn Mors-Thy á dögunum.

Danska handknattleikssambandið hefur sektað Holm um 3.500 danskar krónur, jafnvirði um 70 þúsund íslenskra króna, fyrir ógnandi hegðun í garð Henriks Mortensen, eftirlitsmanns leiksins. Þá þarf Holm einnig að greiða málskostnað upp á 4.136 danskar krónur.

Atvikið átti sér stað eftir 29-26 tap Ribe-Esbjerg gegn Mors-Thy í dönsku bikarkeppninni. Marc Uhd, þjálfari Ribe-Esbjerg, hafði áður fengið beint rautt spjald fyrir ummæli í garð eftirlitsmannsins en hann kallaði Mortensen meðal annars valdasjúkan.

Samkvæmt skýrslu eftirlitsmannsins gekk Holm að honum eftir leikinn og hótaði honum alvarlegum afleiðingum ef hann myndi tilkynna hegðun þjálfarans til aganefndar.

„Ef þú tilkynnir þetta þá slátra ég þér,“ sagði Holm samkvæmt skýrslu Mortensen. Eftirlitsmaðurinn segir að framkvæmdastjórinn hafi ítrekað hótunina þegar hann reyndi að ganga í burtu. Hvorki Ribe-Esbjerg né Jesper Holm mótmæltu lýsingu eftirlitsmannsins við meðferð málsins og hefur Holm ekki viljað tjá sig um niðurstöðuna.

Þjálfarinn Marc Uhd fékk jafnframt eins leiks bann vegna hegðunar sinnar og þurfti að fylgjast með næsta leik liðsins gegn GOG úr stúkunni. Mors-Thy, sem sló Ribe-Esbjerg út úr bikarkeppninni, er með Íslandsmeisturum Vals í riðli Evrópudeildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top