Þýska úrvalsdeildarliðið Rhein-Neckar Löwen hefur sagt Maik Machulla upp störfum sem aðalþjálfara liðsins. Félagið greindi frá ákvörðuninni í tilkynningu í morgun. Ákvörðunin kemur í kjölfar erfiðrar byrjunar Rhein-Neckar Löwen á tímabilinu en frammistaða liðsins í síðasta heimaleik gegn Eisenach virðist hafa fyllt mælinn hjá forráðamönnum félagsins. Machulla tók við þjálfun Rhein-Neckar Löwen fyrir tímabilið 2025/2026 og hefur því aðeins verið við stjórnvölinn í rúmt ár. „Þrátt fyrir margar góðar vísbendingar og sterkan undirbúning hefur liðinu ekki tekist að ná jákvæðum úrslitum í keppnisleikjum á tímabilinu. Það, ásamt vonbrigðum með frammistöðuna í síðasta heimaleik gegn Eisenach, leiddi til þeirrar ákvörðunar að leysa Maik Machulla tafarlaust undan störfum,“ segir Holger Bachert, framkvæmdastjóri félagsins. Rhein Neckar Löwen er með sjö stig í 11.sæti deildarinnar eftir átta leiki. Liðið tapaði um helgina á heimavelli gegn Eisenach 29-33. Liðið hefur unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum Machulla segist virða ákvörðun félagsins þótt hann hefði gjarnan viljað halda áfram. „Auðvitað sáum við öll fyrir okkur að tímabilið myndi byrja öðruvísi. Ég virði ákvörðun félagsins þótt ég hefði mjög gjarnan viljað halda áfram að vinna með þessu liði. Ég hef metið daglegt samstarf við strákana mikils og hef enn fulla trú á gæðum þeirra og möguleikum,“ segir Machulla. Aðstoðarþjálfarinn tekur við Michel Abt, sem hefur verið aðstoðarþjálfari Rhein-Neckar Löwen, tekur við sem aðalþjálfari liðsins. Abt er 36 ára gamall og þekkir félagið vel. Hann lék með yngri flokkum Rhein-Neckar Löwen og síðar bæði aðalliði og varaliði félagsins. Hann þjálfaði varaliðið á árunum 2017 til 2022 áður en hann tók við þjálfun Eulen Ludwigshafen. Abt sneri aftur til Rhein-Neckar Löwen fyrir síðasta tímabil sem aðstoðarþjálfari og fær nú tækifæri til að stýra aðalliðinu. „Michel hefur Rhein-Neckar Löwen í blóðinu og þekkir liðið vel. Við teljum hann mjög hæfan handboltaþjálfara og erum sannfærðir um að hann muni hafa jákvæð áhrif á liðið,“ segir Bachert.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.