Víkingur og KA mættust í Powerade bikar karla í kvöld og Víkingar höfðu aðeins meiri tök á fyrri hálfleiknum og voru þremur mörkum yfir í hálleik, 20-17. Víkingar voru ekki að hleypa strákunum á Brekkuna inn í leikinn og Víkingur landaði að lokum sjö marks sigri en lokatölur urðu 35-28 fyrir Víking og Fossvogurinn verður í pottinum þegar dregið verður í næstu umferð. Sigurður Páll Matthíasson var atkvæðamestur í liði Víkinga en hann skorað átta mörk. Jón Karl Einarsson skoraði sex og aðrir minna. Dagur Árni Heimissson leiddi sóknarleik KA í kvöld en hann skoraði þrettán mörk. Andri Freyr Friðriksson skoraði fimm og aðrir minna. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.