Victor Szilagyi, framkvæmdastjóri þýska stórliðsins THW Kiel segist gera ráð fyrir því að þýski landsliðsmarkvörðurinn Andreas Wolff verði áfram hjá félaginu að minnsta kosti til ársins 2028. Ummæli hans vekja sérstaka athygli í ljósi fregna þess efnis að Wolff hafi þegar skrifað undir fimm ára samning við Gummersbach. Þýski handboltamiðillinn RT Handball greindi frá því á sunnudaginn að Wolff hefði skrifað undir langtímasamning við Gummersbach og í gær var greint nánar frá því að um fimm ára samning væri að ræða. Samkvæmt fréttum miðilsins á samningurinn að taka gildi næsta sumar. Andreas Wolff sagður vera búinn að skrifa undir hjá Gummersbach Wolff er hins vegar samningsbundinn Kiel og þyrfti Gummersbach því að öllum líkindum að greiða fyrir að fá markvörðinn til félagsins áður en samningur hans rennur út. Szilagyi tjáði sig um framtíð Wolff í samtali við Handball-World um helgina og gerði þá lítið úr möguleikanum á því að markvörðurinn yfirgæfi félagið næsta sumar. Hann sagðist reikna með því að Wolff yrði áfram hjá Kiel að minnsta kosti til ársins 2028. Christoph Schindler, framkvæmdastjóri Gummersbach hefur einnig tjáð sig um möguleikann á að fá Wolff til félagsins. Í samtali við Dyn sagði Schindler að það væri hluti af starfi hans að kanna hvort mögulegt væri að fá leikmenn í gæðaflokki Wolff þegar raunhæft tækifæri gæfist. Samkvæmt þýska miðlinum Oberberg-Aktuell gætu möguleg félagaskipti Wolff næsta sumar einnig ráðist af því hvort Kiel takist að fá þýska landsliðsmarkvörðinn David Späth frá Rhein-Neckar Löwen. Späth hefur verið nefndur sem arftaki Wolff hjá Kiel en félagið þyrfti að ná samkomulagi um að hann losnaði undan samningi sínum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.