Ómar Ingi spilar ekkert meira á þessu ári
Sævar Jónasson

Ómar Ingi Magnússon gæti verið frá keppni í fimm vikur eftir að hafa fengið bakslag í meiðsli aftan í læri gegn GOG í vikunni. Þetta kom fram í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Kristinn Björgúlfsson sagði að Magdeburg reiknaði með að Ómar Ingi hefði leikið sinn síðasta leik á árinu.

Ómar Ingi var ekki í leikmannahópi Magdeburg sem vann Hamburg örugglega, 33-22 á útivelli í þýsku Bundesligunni í gær.

„Ómar Ingi hefur verið tæpur aftan í læri í langan tíma og síðan kom smá bakslag gegn GOG í vikunni og Magdeburg reiknar ekki með að Ómar Ingi spili fleiri leiki á þessu ári,“ sagði Kristinn. Hann fór yfir leikjaplan Magdeburg og benti á að liðið ætti níu leiki eftir fram að áramótum. Gangi batinn eftir gætu næstu leikir Ómars Inga því orðið æfingaleikir Íslands gegn Kúveit í aðdraganda heimsmeistaramótsins í janúar.

„Fólkið í Magdeburg er sennilega himinlifandi með það að hann sé frá í næstu níu leikjum og svo fari hann á fullt með landsliðinu í janúar,“ sagði Stymmi klippari í léttum dúr.

Einar Ingi Hrafnsson hafði áhyggjur af því að tíminn fram að HM yrði knappur. „Mér svelgdist vel á þegar Kiddi sagði okkur þetta fyrir þátt. Það sér á teppinu undir mér en þetta er ekki gott ef þetta verður einhvers konar kapp við tímann,“ sagði Einar Ingi. Hann benti á að erlendir veðbankar spáðu Íslandi góðu gengi á mótinu. „Ekkert minna en undanúrslit er í boði. Þá megum við ekki við svona skakkaföllum.“

Umræðan snerist einnig um stöðu Íslands í hægri skyttunni fyrir HM en þar var farið yfir stöðuna á meiðslum Viggós Kristjánssonar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top