Það er enginn eins og KA fólkið
Egill Bjarni Friðjónsson

Daði Jónsson, fyrirliði KA, var í skýjunum eftir 35-30 útisigur liðsins gegn Þór í Akureyrarslagnum í Olís-deild karla í gær. Daði hrósaði þjálfurum liðsins fyrir frábæran undirbúning og sparaði ekki stóru orðin þegar stuðningsmenn KA bar á góma en birt var viðtal við Daða eftir leikinn á samfélagsmiðla síðu KA.

„Þetta var hörkuleikur eins og alltaf og við vissum að þetta yrði helvítis hörkuleikur. Þeir eru með flott lið en við héldum í okkar leikplan og hrós á þjálfarana. Þetta var hrikalega vel uppsettur leikur og við fylgdum okkar plani,“ sagði Daði.

KA-menn sýndu mikinn kraft í síðari hálfleik og tókst að tryggja sér fimm marka sigur á útivelli gegn erkifjendunum. Daði var sérstaklega ánægður með hvernig hans menn mættu til leiks eftir hálfleikshléið og sagði það aldrei hafa komið til greina að láta sigurinn sér úr greipum ganga.

„Ég er ánægður hvernig við komum út í seinni hálfleikinn. Það var skýrt frá byrjun að við vildum þetta helvíti mikið og við ætluðum okkur að sigra þennan leik. Það helst fyrir KA fólkið okkar sem hefur verið frábært í allan vetur og þau áttu þetta skilið.“

Stemningin í kringum Akureyrarslaginn er jafnan mögnuð og stuðningsmenn beggja liða láta vel í sér heyra. Daði var sérstaklega þakklátur stuðningsmönnum KA sem fjölmenntu á leikinn og studdu sína menn til sigurs.

„Þetta er ólýsanlegt. Það er ekki annað hægt en að gera allt sem maður getur, allt sem maður mögulega getur fyrir þetta fólk. Það er enginn eins og KA fólkið. Þetta fólk á þvílíkt hrós skilið fyrir mætinguna og þetta er líka svo gaman, fyrir alla sem koma að þessu. Við höldum þessu áfram það er klárt mál.“

Með sigrinum styrkti KA stöðu sína í toppbaráttu Olís-deildarinnar en liðið situr í 3. sæti með 16 stig, sex stigum á eftir toppliði Hauka sem hefur unnið alla ellefu leiki sína í deildinni til þessa og er með fullt hús stiga.

Staðan er öllu erfiðari hjá Þórsurum sem sitja í 10. sæti deildarinnar með sex stig, jafn mörg og HK sem er í 11. sæti en á leik til góða. Úrslitin voru því mikilvæg fyrir bæði lið, KA í baráttunni í efri hluta deildarinnar og Þór í þeirri neðri.

Egill Bjarni Friðjónsson

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top