Hrannar Guðmundsson, þjálfari Aftureldingar og hluti af þjálfarateymi íslenska landsliðsins, var á lista yfir mögulega þjálfara hjá þýska Bundesligufélaginu Bietigheim. Þetta kom fram hjá Sérfræðingnum í nýjasta þætti Handkastsins. Bietigheim skipti um þjálfara í síðustu viku og kynnti nýjan þjálfara fyrir leikinn gegn Melsungen. Liðin skildu jöfn, 31–31, þar sem Reynir Þór Stefánsson var markahæstur í liði Melsungen. Í umræðunni kom fram að hátt í 40 þjálfarar hefðu verið á upphaflegum lista Bietigheim. Samkvæmt heimildum Sérfræðingsins var nafn Hrannars enn til skoðunar eftir að félagið hafði fækkað á listanum. „Samkvæmt mínum heimildum var hann ekki einn af 40, þeir voru búnir að minnka listann niður í 10–15 þjálfara. Athyglisvert að Hrannar, með ekki meiri þjálfarareynslu en þetta, sé kominn á borð hjá félagi í þýsku Bundesligunni,“ sagði Sérfræðingurinn. Hann taldi starf Hrannars með íslenska landsliðinu hafa sitt að segja. „Á sama tíma hefur það mikil áhrif að hann er í þjálfarateymi íslenska landsliðsins og gefur honum mikið vægi.“ Kristinn Björgúlfsson taldi líklegt að Hrannar hefði sjálfur, eða með aðstoð annarra, komið nafni sínu á framfæri við félagið. Ekki kom fram í umræðunni hvort Bietigheim hefði rætt við Hrannar. „Hann hefur væntanlega verið með einhvern sem kom hans nafni til þeirra. Svo getur vel verið að hann hafi sótt um starfið sjálfur. Þetta er ekki fyrsta starfið sem hann sækist eftir í Þýskalandi eða annars staðar í Evrópu,“ sagði Kristinn. Kristinn sagðist þó ekki telja Hrannar tilbúinn til að taka við liði í þýsku Bundesligunni að svo stöddu, þótt hann tæki jákvætt í metnað hans til að þjálfa erlendis. „Maður þarf að hafa þann metnað að sækjast eftir starfinu og það er gott að hann er greinilega með þann metnað,“ sagði Kristinn og bætti við: „Hann hefur sótt um störf hjá tveimur öðrum félögum í þýsku Bundesligunni sem eru töluvert stærri en Bietigheim og síðan einu félagi í Danmörku, bæði sem aðalþjálfari og sem aðstoðarþjálfari.“ Hrannar verður í eldlínunni í kvöld þegar Afturelding tekur á móti toppliði Hauka í fyrsta leik 11.umferðar Olís-deildar karla.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.