Haukar í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Evrópubikarsins
Egill Bjarni Friðjónsson

Dregið verður í 16-liða úrslit Evrópubikars kvenna á morgun og verða Haukar á meðal þeirra sextán liða sem eftir eru í keppninni. Dregið verður í höfuðstöðvum evrópska handknattleikssambandsins í Vínarborg klukkan 10:00.

Haukar eru í efri styrkleikaflokknum og munu því dragast gegn einu af átta liðunum í þeim neðri. Mögulegir mótherjar Hauka koma meðal annars frá Hollandi, Slóveníu, Serbíu, Sviss, Slóvakíu og Úkraínu. Leikirnir í 16-liða úrslitunum fara fram dagana 9.–17. janúar á næsta ári.

Haukar tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitunum með öruggum samanlögðum sigri gegn svartfellska liðinu Levalea Nikšić í þriðju umferð keppninnar fyrr í mánuðinum en báðir leikirnir voru leiknir hér á landi.

Haukar unnu fyrri leikinn með átján marka mun, 42–24. Levalea hafði síðan betur í síðari leiknum, 27–24, en Haukar fögnuðu samanlögðum fimmtán marka sigri, 66–51.

Liðin í neðri styrkleikaflokknum eru:

  • Zwartwoud Kwiek (Holland)
  • ŽRK Mlinotest Ajdovščina (Slóvenía)
  • RK Ruma (Serbía)
  • ŽORK Bor (Serbía)
  • LK Zug (Sviss)
  • HC DAC Dunajská Streda (Slóvakía)
  • HK Slovan Duslo Šaľa (Slóvakía)
  • HC Galychanka (Úkraína)

Auk Hauka eru O.F.N. Ionias, Maccabi Haarazim Ramat Gan, Handball Erice, WHC Čair Skopje, Madeira Andebol, Iuventa Michalovce og Yalıkavakspor í efri styrkleikaflokknum.

Hægt verður að fylgjast með drættinum í beinni útsendingu á YouTube-rás evrópska handknattleikssambandsins, Home of Handball.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top