Liðsfélagi Hauks þarf að gangast undir aðgerð á kjálka
Kadir Caliskan /AFP

Þýska Bundesliguliðið Rhein-Neckar Löwen verður áfram án sænsku skyttunnar Edwins Aspenbäck en leikmaðurinn þarf að gangast undir skurðaðgerð vegna vandamála í kjálka.

Félagið staðfesti tíðindin í gær eftir að frekari læknisrannsóknir leiddu í ljós að nauðsynlegt væri að grípa til aðgerðar. Aspenbäck, sem er 26 ára gamall, hefur þegar misst af síðustu þremur leikjum Rhein-Neckar Löwen vegna vandamálanna. Hann mun gangast undir minniháttar aðgerð í næstu viku.

Ekki liggur fyrir nákvæmlega hversu lengi Svíinn verður frá keppni en endurkoma hans mun ráðast af því hvernig batinn gengur eftir aðgerðina. Forráðamenn Rhein-Neckar Löwen vonast þó til að Aspenbäck geti snúið aftur á völlinn einhvern tímann í desember.

Þar með er ljóst ljóst að Aspenbäck verður ekki með Rhein-Neckar Löwen þegar liðið heimsækir Flensburg í þýsku Bundesligunni á sunnudaginn. Þar mætir Rhein-Neckar Löwen liði Arnars Freys Arnarssonar sem tapaði stórt gegn Magdeburg um síðustu helgi.

Fjarvera Aspenbäck er enn eitt áfallið fyrir Rhein-Neckar Löwen sem hefur átt misjöfnu gengi að fagna á tímabilinu. Félagið vonast til að fá Svíann aftur til leiks fyrir þéttskipaða leikjadagskrá í desember en engin nákvæm dagsetning hefur verið gefin út um endurkomu hans.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top