Skoraði þrjú mörk 15 dögum eftir fæðingu
Sævar Jónasson

Natasja Hammer lék sinn fyrsta leik á tímabilinu með Stjörnunni gegn Selfossi á föstudaginn, aðeins 15 dögum eftir að hafa eignast sitt annað barn. Hún skoraði þrjú mörk í leiknum og var endurkoma hennar til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins en Selfoss hafði betur í leiknum.

„Hún mætti og skoraði þrjú mörk, þetta er ótrúlegt. Ég veit ekki einu sinni hvaða lýsingarorð ég á að nota fyrir þetta. Ég veit ekki einu sinni hvort þetta sé hollt eða gott en hún þekkir líkamann sinn betur en við og þetta er magnað,“ sagði Stymmi klippari.

Kristinn Björgúlfsson tók undir undrunina.

„Hreyfingarnar hennar í leiknum gáfu það ekki til kynna að hún hafi átt barn fyrir 15 dögum.“

Natasja Hammer var lang markahæsti leikmaður Stjörnunnar á síðustu leiktíð með 136 mörk í Olís-deildinni og er endurkoma hennar gríðarlega mikilvæg fyrir Stjörnuliðið sem situr á botni deildarinnar með tvö stig eftir níu umferðir. HK, KA/Þór og Grótta eru öll með fjögur stig.

Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Stjörnunnar, sagði Natösju hafa tekið þátt á æfingum liðsins alla meðgönguna. Hún hefði mætt á æfingar, lyftingar og myndbandsfundi og verið á æfingu daginn áður en barnið fæddist.

„Hún var að sjálfsögðu ekki með í spili eða í einhverjum návígjum en hún hefur alltaf samt verið með á æfingum og tekið upphitun, sendingar og skot með stelpunum,“ sagði Arnar Daði. Hann sagði hana jafnframt hafa tekið þátt í lyftingaræfingum með liðinu og fylgt sama prógrammi og aðrir leikmenn. Upphaflega var stefnt að endurkomu eftir áramót. Leikirnir í desember höfðu þó einnig verið til skoðunar ef allt gengi vel.

„Stefnan var að hún myndi koma til baka í fyrstu leikina eftir áramót. Við horfðum alveg í leikina í desember en það var algjör bónus ef hún hefði náð þeim leikjum.“

Samkvæmt Arnari Daða gekk fæðingin vel og Natasja mætti aftur á æfingu sex dögum síðar. Fyrst um sinn vann hún í sínum æfingum til hliðar og þjálfarinn reiknaði með að þannig yrði það næstu vikurnar.

„En síðan bara daginn eftir setti hún á sig harpix á puttana og sagði við mig að hún yrði með í öllu sem færi fram á æfingunni.“

Í kjölfarið ræddu þau stöðuna og Natasja átti einnig samtal við sjúkraþjálfara. Þá var ákveðið að miða við að hún næði heilli æfingaviku fyrir Selfossleikinn.

„Hún var með á öllum æfingunum og spilaði 15 dögum eftir að hafa fætt sitt annað barn,“ sagði Arnar Daði. Hann rifjaði jafnframt upp að Natasja hefði snúið aftur til keppni um mánuði eftir fyrstu fæðinguna. Að þessu sinni hefði hún hins vegar haldið áfram að æfa með liðinu alla meðgönguna.

„Hún þurfti heldur ekkert viku til að koma öxlinni í gang eða eitthvað svoleiðis, hún hefur æft með liðinu allan tímann,“ sagði Arnar Daði.

Nánar var rætt um endurkomu Natösju í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top