Hver einasti leikur verður barasta upp á líf og dauða
Frank Hoermann /AFP

Nicolej Krickau, þjálfari þýska stórliðsins Füchse Berlin segir að fram undan séu átta úrslitaleikir hjá liðinu í Meistaradeild Evrópu. Berlínarliðið hefur leik í milliriðli keppninnar á morgun þegar það heimsækir danska stórliðið Álaborg og er þegar komið í erfiða stöðu í baráttunni um sæti í átta liða úrslitum.

Füchse Berlin er eina liðið í sínum milliriðli sem byrjar án stiga og situr því á botni riðilsins áður en keppni hefst. Ástæðan er sú að liðið tapaði báðum viðureignum sínum gegn ungverska stórliðinu Veszprém í riðlakeppninni, en úrslit þeirra leikja fylgja liðunum áfram í milliriðilinn.

Krickau gerir sér fulla grein fyrir stöðunni og segir að liðið hafi lítið svigrúm til mistaka.

„Hver einasti af þessum átta leikjum sem fram undan eru verður barátta upp á líf og dauða,“ sagði Krickau í samtali við þýska fjölmiðla.

Fjögur af sex liðum milliriðilsins komast áfram í átta liða úrslit og telur Krickau að Berlínarliðið þurfi að ná stigum í að minnsta kosti fimm af þeim átta leikjum sem eftir eru.

„Við verðum þess vegna að ná stigum í að minnsta kosti fimm af þessum átta leikjum,“ sagði Krickau.

Auk Álaborgar og Veszprém eru Wisła Płock, Paris Saint-Germain og MT Melsungen í riðlinum. Hjá Melsungen leikur íslenski landsliðsmaðurinn Reynir Þór Stefánsson og mun hann því mæta Berlínarliðinu í milliriðlinum.

Þrátt fyrir erfiða stöðu er Mathias Gidsel, stórstjarna Füchse Berlin og besti handboltamaður heims, hvergi banginn. Daninn telur að liðið eigi enn möguleika á að berjast um annað sæti riðilsins.

„Það er mögulegt að sækja að öðru sætinu. Við höfum gæðin til að vinna öll liðin í þessum riðli. Þótt við séum eina liðið án stiga verður það að vera markmiðið okkar,“ sagði Gidsel.

Annað sætið gæti reynst afar mikilvægt þar sem það myndi mögulega gera Berlínarliðinu kleift að forðast Barcelona og Magdeburg í átta liða úrslitunum.

Fyrsta verkefnið verður gegn Álaborg á morgun klukkan 17:45. Krickau, sem er sjálfur Dani, segir að þótt Álaborg hafi átt í ákveðnum vandræðum í sóknarleiknum að undanförnu sé liðið afar sterkt varnarlega. Hann hrósar sérstaklega Niklas Landin, markverði Álaborgar, sem hefur verið í frábæru formi.

„Vörnin þeirra og Landin eru gríðarlega sterkir. Þess vegna verðum við að spila betur í sókninni en við gerðum gegn Kiel,“ sagði Krickau.

Füchse Berlin mætir til leiks eftir 28–25 sigur gegn THW Kiel í þýsku Bundesligunni um helgina, þar sem varnarleikurinn og markvarslan voru í aðalhlutverki. Álaborg tapaði hins vegar óvænt gegn Skanderborg Aarhus í dönsku úrvalsdeildinni um helgina og er því einnig undir pressu fyrir viðureign morgundagsins.

Þrátt fyrir að liðin sitji í tveimur neðstu sætum milliriðilsins telur Krickau að um sannkallaðan stórleik verði að ræða.

„Þótt neðsta liðið mæti því næstneðsta er þetta algjör toppleikur,“ sagði Krickau.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top