Valur mætir ungverska liðinu Tatabánya á útivelli í Evrópudeild karla í kvöld. Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals segir að Valsliðið þurfi að eiga mjög góðan leik til að ná í hagstæð úrslit gegn öflugum heimamönnum sem hafa styrkt leikmannahóp sinn frá því liðin mættust á Hlíðarenda. Valsmenn eru mættir til Ungverjalands og fengu að æfa í keppnishöllinni í gær. Ágúst segir að aðstæður séu fyrsta flokks og að leikmenn liðsins hlakki til verkefnisins. Valur hafði betur í viðureign félaganna þegar þau mættust í Valsheimilinu fyrr á tímabilinu. „Við erum að fara spila í gríðarlega flottu mannvirki og það verður góð upplifun fyrir drengina að spila við þessar aðstæður. Við erum að reyna undirbúa okkur vel fyrir leikinn og æfðum í gær í höllinni,“ sagði Ágúst í samtali við Handkastið. Ágúst segir að Tatabánya sé með sterkara lið en þegar Ungverjarnir heimsóttu Valsheimilið. Liðið hafi endurheimt mikilvægan leikmann auk þess sem reynslumikill línumaður hafi bæst í hópinn. „Við erum að mæta öflugu liði og þeir eru betur mannaðir en þegar þeir mættu okkur í Valsheimilinu. Bodo, sem er þeirra aðal skytta er með í leiknum í kvöld og síðan eru þeir komnir með nýjan línumann sem hefur leikið með ungverska landsliðinu og spilað bæði í Frakklandi og víðar. Gríðarlega reyndur, hávaxinn og öflugur leikmaður.“ Ágúst leggur mikla áherslu á varnarleikinn og telur mikilvægt að Valsmenn nái að nýta sér hraðaupphlaup í kjölfar góðrar varnar. „Við þurfum að ná vel útfærðum leik til að ná í úrslit og varnarleikurinn verður grunnurinn á okkar leik til að geta keyrt vel á þá. Það er það sem við leggjum aðal áherslu á.“ Þjálfarinn segir jafnframt mikilvægt að leikmenn Vals sýni aga í sóknarleiknum enda vilji heimamenn keyra upp hraðann á sínum heimavelli. „Við þurfum að vera mjög agaðir og fara vel með boltann sóknarlega. Þeir vilja keyra mikið á sínum heimavelli. Ég hef fína tilfinningu fyrir leiknum í kvöld. Við höfum undirbúið okkur fyrir mjög erfiðan leik, þeir eru sterkir en á sama skapi höfum við verið að leika vel og ég er spenntur að sjá strákana eiga við Tatabanya á þeirra heimavelli.“ Valsmenn verða án Tjörva Týs Gíslasonar í leiknum en hann varð eftir á Íslandi þar sem hann á von á barni. Að öðru leyti segir Ágúst leikmannahópinn tilbúinn í slaginn. „Strákarnir eru í góðum gír og eru tilbúnir og spenntir fyrir leiknum. Tjörvi Týr gat ekki komið með okkur þar sem hann á von á barni og hann var því eftir heima en aðrir eru tilbúnir í verkefnið,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, að lokum í samtali við Handkastið. Leikur Vals verður sýndur í beinni á Livey í kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.