Áfall fyrir mótherja Íslands á EM
CLAUS FISKER /AFP

Ungverska landsliðið verður án leikstjórnandans Petru Simon á Evrópumóti kvenna í desember. Simon hefur orðið fyrir axlarmeiðslum og er áætlað að hún verði frá keppni í sex vikur.

Simon, sem leikur með Ferencváros, meiddist í leik gegn Team Esbjerg í Meistaradeild Evrópu á dögunum. Félagið greindi frá meiðslunum á sunnudaginn og staðfesti að hún myndi missa af Evrópumótinu.

Samkvæmt upplýsingum frá lækni félagsins þarf Simon ekki að gangast undir aðgerð en fram undan er hvíld og endurhæfing. Fjarveran er áfall fyrir Ungverja sem þurfa nú að undirbúa sig fyrir mótið án hennar.

Ísland og Ungverjaland eru saman í riðli á EM ásamt Svartfjallalandi og Slóveníu. Riðillinn verður leikinn í Oradea í Rúmeníu og mætast Íslendingar og Ungverjar 7. desember í lokaumferð riðlakeppninnar. Tvö efstu liðin komast áfram í milliriðla.

Ungverjar hefja leik gegn Svartfjallalandi 3. desember og mæta Slóveníu tveimur dögum síðar. Fyrir mótið eru leikur liðið tvo vináttuleiki gegn Austurríki og Slóvakíu, 27. og 29. nóvember.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top