Tveir lykilmenn Magdeburg orðaðir við endurkomu til Álaborgar
RONNY HARTMANN / AFP

Danska stórliðið Aalborg Håndbold er orðað við tvo fyrrverandi leikmenn félagsins sem leika í dag með þýsku meisturunum SC Magdeburg. Um er að ræða danska línumanninn Magnus Saugstrup og sænska leikstjórnandann Felix Claar sem hafa báðir verið í lykilhlutverkum hjá þýska stórliðinu undanfarin ár.

Danski miðillinn Nordjyske fjallar um málið en orðrómar um mögulega endurkomu þeirra til Álaborgar hafa verið á kreiki um nokkurt skeið. Saugstrup og Claar léku báðir með Álaborg áður en þeir héldu til Magdeburg þar sem þeir hafa fest sig í sessi sem tveir af bestu leikmönnum liðsins.

Saugstrup er samningsbundinn Magdeburg til ársins 2029 en samkvæmt dönskum fjölmiðlum er ákvæði í samningi hans sem gæti gert honum kleift að yfirgefa félagið ári áður, eða sumarið 2028.

Claar er hins vegar með samning við þýska félagið til ársins 2028 og gæti því einnig verið laus undan samningi eftir tæp tvö ár.

Jan Larsen, framkvæmdastjóri Aalborg Håndbold, var spurður út í orðróminn í samtali við Nordjyske en vildi hvorki staðfesta né neita því að félagið hefði áhuga á að fá leikmennina aftur til Danmerkur.

„Nánast frá því að þeir fóru héðan hef ég verið vanur orðrómi um að þeir gætu snúið aftur einn daginn. Það eina sem ég get sagt er að þetta eru tveir frábærir handboltamenn en að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um málið,“ sagði Larsen við Nordjyske.

Báðir leikmennirnir hafa verið afar mikilvægir í velgengni Magdeburg en þar leika einnig íslensku landsliðsmennirnir Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson.

Magdeburg hefur verið eitt sterkasta félagslið Evrópu undanfarin ár og ljóst að brotthvarf tveggja jafn mikilvægra leikmanna og Saugstrup og Claar myndi hafa töluverð áhrif á leikmannahóp félagsins.

Enn sem komið er liggur þó ekkert fyrir um að félögin hafi átt í formlegum viðræðum eða að leikmennirnir hyggist yfirgefa Magdeburg. Orðrómurinn heldur engu að síður áfram að magnast í Danmörku.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top