Einar Bragi Aðalsteinsson gengur til liðs við Frisch Auf! Göppingen sumarið 2027 en félagið greindi frá þessu fyrir skemmstu. Einar Bragi hefur látið til sín taka með Kristianstad á síðustu árum og hefur frammistaða hans m.a. í Meistaradeild Evrópu vakið athygli. Hann skrifar nú undir tveggja ára samning við Göppingen, til ársins 2029. Ben Matschke, þjálfari Göppingen hafði þetta að segja um félagaskiptin: "Með Einari Braga Aðalsteinssyni fáum við til okkar afar sterkan varnarmann sem getur leikið í miðri vörninni. Á síðasta ári sýndi hann einnig frábæra frammistöðu í sóknarleiknum með IFK Kristianstad og hefur haldið því áfram á yfirstandandi tímabili í Meistaradeild Evrópu." "Frammistaða hans með félagsliði sínu hefur þegar skilað honum fyrstu landsleikjunum með íslenska landsliðinu. Við erum afar ánægð með að hafa tekist að fá til okkar íslenskan landsliðsmann sem er á besta aldri sem handknattleiksmaður." Einar Bragi sagði sjálfur að hann hefði valið Göppingen vegna þess að félagið hefði ríka hefð og að hann væri spenntur fyrir því að spila fyrir framan fulla höll í Göppingen og að fá að upplifa andrúmsloftið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.