Ýmir Örn mættur aftur til æfinga eftir handarbrot
JOHAN NILSSON / AFP

Ýmir Örn Gíslason, fyrirliði Göppingen er byrjaður að æfa á ný eftir handarbrot. Í samtali við þýska miðilinn Südwest Presse gaf hann ekkert upp um hvort hann yrði með þegar Göppingen sækir Balingen heim í þýska bikarnum á miðvikudag.

Ýmir braut bein í hægri hendi, kasthendinni í 31–18 tapi gegn MT Melsungen í 2. umferð þýsku Bundesligunnar fyrir rúmlega tveimur mánuðum. Hann gekkst í kjölfarið undir aðgerð og hefur verið frá keppni síðan.

Línumaðurinn missti af leikjum Íslands gegn Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM í síðustu viku. Hann nýtti landsleikjahléið til að fara í frekari rannsóknir hér á landi og er nú kominn aftur til æfinga hjá Göppingen.

Göppingen er í 11. sæti Bundesligunnar með átta stig eftir ellefu leiki. Næsti deildarleikur er á heimavelli gegn Füchse Berlin sunnudaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top