Björgvin Páll 30 landsleikjum frá því að jafna Ólaf Stefánsson
Sævar Jónasson

Björgvin Páll Gústavsson markvörður íslenska landsliðsins lék sinn 300. landsleik fyrir Íslands hönd í 39-26 sigri gegn Eistlandi í Tallinn um helgina. Björgvin er þar með orðinn fimmti leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi og nálgast nú Ólaf Stefánsson á listanum.

Björgvin Páll, sem er 41 árs gamall, hefur verið einn af máttarstólpum íslenska landsliðsins um árabil og náði stórum áfanga þegar hann lék sinn 300. A-landsleik. Hann varði fimm skot í leiknum og var með 24% markvörslu.

Björgvin Páll er nú aðeins 30 landsleikjum frá því að jafna Ólaf Stefánsson, sem lék 330 landsleiki fyrir Ísland á sínum glæsilega ferli. Ólafur er fjórði leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi.

,,300 landsleikir - Það er bara takk. Það er takk frá Svavari í Fitness sport, hann sendi kveðju. 300 landsleikir, er Bjöggi okkar Cristiano Ronaldo? Hann ætlar bara ekkert að hætta," sagði Stymmi klippari í nýjasta þætti Handkastsins.

,,Það verða síðan einhver vinslit þegar Snorri velur hann ekki?" bætti Björn Ingi Jónsson við.

Guðmundur Hrafnkelsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður, er enn leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi með 407 landsleiki. Guðjón Valur Sigurðsson kemur þar á eftir með 365 leiki og Geir Sveinsson er í þriðja sæti með 340 landsleiki.

Björgvin Páll er eini leikmaðurinn á meðal fimm leikjahæstu landsliðsmanna Íslands sem er enn í fullu fjöri með landsliðinu.

Tíu leikjahæstu landsliðsmenn Íslands frá upphafi

  1. Guðmundur Hrafnkelsson – 407 leikir
  2. Guðjón Valur Sigurðsson – 365 leikir
  3. Geir Sveinsson – 340 leikir
  4. Ólafur Stefánsson – 330 leikir
  5. Björgvin Páll Gústavsson – 300 leikir
  6. Júlíus Jónasson – 288 leikir
  7. Róbert Gunnarsson – 276 leikir
  8. Valdimar Grímsson – 271 leikur
  9. Snorri Steinn Guðjónsson – 257 leikir
  10. Ásgeir Örn Hallgrímsson – 255 leikir

Björgvin Páll hefur verið hluti af íslenska landsliðinu í tæpa tvo áratugi og var meðal annars í liðinu sem vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 og bronsverðlaun á Evrópumótinu í Austurríki árið 2010.

Næsta stórmót íslenska landsliðsins er heimsmeistaramótið í janúar á næsta ári og því gæti Björgvin Páll haldið áfram að bæta við landsleikjafjöldann á næstu mánuðum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top