Anton Gylfi Pálsson, sem hefur um árabil verið í hópi fremstu handknattleiksdómara landsins, hefur ekkert dæmt á yfirstandandi tímabili, hvorki hér heima né í evrópskum handbolta. Fjarvera hans hefur vakið athygli enda hefur Anton Gylfi verið á meðal þeirra dómara sem hafa fengið stærstu verkefnin á alþjóðlegum vettvangi undanfarin ár. Anton Gylfi er auk þess formaður HDSÍ. Anton Gylfi hefur ásamt Jónasi Elíassyni myndað eitt reyndasta dómarapar landsins en þeir félagar hafa dæmt á stórmótum landsliða og í Meistaradeild Evrópu undanfarin ár. Athygli vekur hins vegar að Anton Gylfi hefur ekkert komið við sögu á tímabilinu á meðan Jónas Elíasson hefur haldið áfram að dæma hér heima. Jónas hefur meðal annars dæmt leiki í Olís-deild karla og kvenna með öðrum dómurum. Handkastið hafði samband við Reyni Stefánsson, formann dómaranefndar, og spurðist fyrir um fjarveru Antons Gylfa og hvort von væri á honum aftur á völlinn. Reynir vildi lítið tjá sig um ástæður fjarverunnar en staðfesti að Anton Gylfi væri væntanlegur aftur til starfa eftir áramót. „Þetta er af persónulegum ástæðum en hann kemur aftur á völlinn eftir áramót,“ sagði Reynir í samtali við Handkastið. Anton Gylfi hefur verið valinn dómari ársins á Íslandi 17 sinnum á síðustu 18 árum, síðast vorið 2025 ásamt Jónasi Elíassyni. Stefán Arnaldsson á metið en hann var 19 sinnum valinn dómari ársins á árunum 1987–2006. Anton Gylfi vantar því tvær viðurkenningar til að jafna metið. Það verður áhugavert að sjá hvort fjarvera hans fyrir áramót hafi áhrif á valið á besta dómara ársins á þessu tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.