17 ára Ísfirðingur varið flesta bolta í Grill 66 deildinni

17 ára Ísfirðingur er sá markmaður sem hefur varið flesta bolta í Grill 66 deild karla það sem af lifir tímabils.

Hermann Alexander Hákonarson heitir þessi 17 ára efnilegi markmaður og hefur vaskleg framganga hans vakið þónokkra athygli. Hann hefur varið 92 bolta og trónir á toppnum yfir flestu vörslurnar samkvæmt HB Statz tölfræði síðunni.

Gengi Harðar hefur hinsvegar verið upp og ofan og hefur vantað stöðugleika í liðið eins og stundum áður. Hafa þeir sigrað 4 leiki og tapað 4. Með -31 í markatölu. Sitja þeir í 5. sæti af 12 liðum.

Handkastið fékk viðbrögð frá Hermanni Alexander eftir þessa vasklegu framgöngu hans í byrjun tímabils í Grillinu.

"Tímabilið hefur verið mjög skemmtilegt en líka krefjandi. Við vorum tveir markmenn í byrjun tímabilsins en það kom fljótlega í ljós að ég yrði aðalmarkmaður Harðar í vetur. Ég hef því fengið að spila mikið og mér finnst ég hafa staðið mig ágætlega. Ég hef lært helling á þessu og finn að ég er að verða betri með hverjum leik"

"Ég hef mikinn metnað fyrir handboltanum og mæti á allar æfingar og legg mig fram. Samhliða boltanum er ég í Menntaskólanum á Ísafirði á Afreksbraut. Gott að geta samrýmt boltann og skólann. Það er því nóg að gera"

"Það er mér mjög mikilvægt að vera góður liðsfélagi sem hinir strákarnir geta treyst á. Ég vil halda áfram að bæta mig og ná eins langt í handboltanum og ég get. Draumurinn er að ná að spila handbolta erlendis og einhvern daginn komast í A-landslið Íslands. Ég hef fengið að taka þátt í æfingum með yngri landsliðunum og stefni á að halda áfram að bæta mig og fá fleiri tækifæri þar" sagði þessi ungi og efnilegi markmaður Harðar frá Ísafirði að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top