Uppselt er á leik Íslands og Úkraínu í undankeppni EM 2028 sem fram fer í Laugardalshöll annað kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:30. Þetta er fyrsti leikur íslenska karlalandsliðsins í undankeppninni. Í tilkynningu frá HSÍ er öllum sem keyptu miða þakkað fyrir stuðninginn og gestir hvattir til að mæta snemma og láta vel í sér heyra. Húsið opnar klukkan 18:00 og Hreimur sér um að hita upp fyrir leikinn með tónlist á gólfinu. Allir miðakaupendur eiga möguleika á að vinna áritaða landsliðstreyju en dregið verður í hálfleik og vinningshafinn kynntur á risaskjánum. VIP-svæðið opnar einnig klukkan 18:00 með mat og drykkjum. Þar fara Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari landsliðsins, og leikmennirnir Viggó Kristjánsson, Ýmir Örn Gíslason og Einar Þorsteinn Ólafsson yfir leikinn í pallborði. HSÍ vekur jafnframt athygli á neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Úkraínu. Fjáröflunarstarfsfólk samtakanna verður í Höllinni og gestir eru hvattir til að taka vel á móti því. Bílastæði verða við nýju höllina og á Þróttaraplani. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV. Íslenska liðið heldur síðan til Tallinn þar sem það mætir Eistlandi sunnudaginn 8. nóvember klukkan 16:00. Sá leikur verður einnig í beinni útsendingu á RÚV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.