Makedónska goðsögnin Kiril Lazarov er orðaður við að taka við þjálfun franska stórliðsins Nantes næsta sumar. Lazarov lék með félaginu síðustu fimm ár leikmannaferils síns en gæti nú snúið aftur í nýju hlutverki. Makedónski miðillinn Gol.mk greindi frá þessu um helgina og vísar til franska Instagram-reikningsins Flash Hand, þar sem Lazarov er sagður vera sterkur kandídat í þjálfarastöðu Nantes fyrir næsta tímabil. Áður hafði Danilo Andjelković verið orðaður við starfið en nú virðist nafn Lazarov einnig komið inn í umræðuna. Lazarov, sem er 46 ára gamall, er nú þjálfari norðurmakedónska félagsliðsins Alkaloid auk þess að vera landsliðsþjálfari Norður-Makedóníu, en hann tók við landsliðinu árið 2021. Hann lék meðal annars til úrslita í Meistaradeild Evrópu með Nantes árið 2018 en liðið tapaði þá fyrir Montpellier í úrslitaleiknum. Lazarov hefur áður lýst áhuga sínum á því að snúa aftur til franska handboltans sem þjálfari og því gæti starfið hjá Nantes höfðað til hans. Ef af ráðningu hans verður yrði það fyrsta þjálfarastarf Lazarov hjá félagsliði utan Norður-Makedóníu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.