Arnar vonast til að halda áfram – Vegferðinni er hvergi nærri lokið
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, vonast til að komandi Evrópumót verði ekki hans síðasta stórmót með liðið. Samningur hans við HSÍ rennur út að mótinu loknu en Jón Halldórsson, formaður sambandsins, segir að styttist í fréttir af framhaldinu.

Arnar tók við landsliðinu í ágúst 2019 og er nú á leið á sitt fjórða stórmót sem landsliðsþjálfari. Hann var spurður út í framtíð sína á blaðamannafundi HSÍ þar sem 17 manna EM-hópurinn var kynntur.

„Ég vona ekki. Ég horfi á það þannig að við erum á leið á okkar fjórða stórmót, sem er sögulegt. Við erum öll glöð með það sem við erum að gera en við erum að taka ákveðin skref í þeirri vegferð sem við erum á og henni er hvergi nærri lokið. Við lítum á þetta mót sem stórt skref og góðan undirbúning fyrir það sem koma skal.“

Arnar horfir jafnframt til verkefnanna sem bíða liðsins eftir Evrópumótið.

„Í apríl eru gríðarlega mikilvægir leikir fyrir næsta stórmót.“

Jón segir að unnið hafi verið að framtíðarmálum landsliðsins undanfarin misseri.

„Það hefur átt sér stað vinna undanfarin misseri og við erum að vinna hörðum höndum að því að skoða framtíð íslenska kvennalandsliðsins. Það hefur gengið vel og liðið er á hárréttri leið. Það styttist í fréttir frá okkur varðandi framhaldið.“

Evrópumótið fer fram 3.–20. desember í Póllandi, Rúmeníu, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi. Ísland leikur í A-riðli í Oradea í Rúmeníu og mætir Slóveníu 3. desember, Svartfjallalandi 5. desember og Ungverjalandi 7. desember.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top