Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 9.umferð fari í Olís deild karla. Valur – Afturelding (Laugardagur 15:30) / Sigurvegari: Valur Einn af stórleikjum helgarinnar á Hlíðarenda. Afturelding hafa verið að glíma við meiðsli en breiddin í hópnum sýndi sig í síðasta leik gegn Þór. Valsarar eru búnir að finna gírinn sinn eftir að Evrópudeildin byrjaði og eiga Gunnar Róbertsson inni sem hafði hægt um sig gegn Stjörnunni. Bæði lið með fulla hópa yrði þetta frábær skemmtun en ég held að skörðin hjá Aftureldingu séu einfaldlega of stór fyrir þennan leik og Valsmenn muni byrja 9.umferðina á sigri. KA - Haukar (Laugardagur 18:30) / Sigurvegari: Haukar ÍBV - Stjarnan (Sunnudagur 13:30) / Sigurvegari: Stjarnan Þór - FH (Sunnudagur 15:00) / Sigurvegari: FH FH tapaði illa gegn KA á miðvikudaginn og ég þykist vita að það sé enginn húmor í Kaplakrika fyrir því tapi. Þeir munu mæta dýrvitlausir norður og hefna fyrir það og því miður fyrir Þórsara þurfa þeir að verða fyrir barðinu á þeim á morgun. Fram – Víkingur (Sunnudagur 17:00) / Sigurvegari: Fram Fram komst á sigurbraut aftur eftir sigur á Selfoss í síðustu umferð og lyftu sér í næst neðsta sæti deildinnar. Víkingar naga sig eflaust í handarbökin að hafa ekki náð neinu úr leiknum gegn ÍBV á fimmtudaginn. Fram fengu tvo aukadaga í hvíld fyrir þennan leik og munu nýta sér það á sunnudaginn og vinna annan leikinn í röð í deildinni. HK – Selfoss (Sunnudagur 18:00) / Sigurvegari: HK 1.umferð (6 réttir)
Talandi um stórleiki þá er þessi leikur af dýrari gerðinni. Taplausir Haukar mæta norður og mæta KA sem unnu nágranna Hauka í Hafnarfirðinum örugglega á miðvikudagskvöldið. Haukar fór nokkuð létt og þægilega í gegnum HK og ættu að mæta úthvíldir til leiks í kvöld. Það verður stappað hús hjá KA enda er handboltinn stolt félagsins þessa dagana. Haukarnir láta það ekki slá sig út af laginu og vinna þriggja marka sigur og bæta besta árangur sinn í efstu deild með enn einum sigrinum.
Það eru skörð hoggin í þetta ÍBV lið eins og við sáum gegn Víking. Samt náðu Eyjamenn að kreista fram sigur í þeim leik. Ef Stjarnan ætlar að vinna í Eyjum þá fá þeir ekki mikið betra tækifæri til þess. Meiðslin munu bíta Eyjamenn í þessum leik en þeir misstu Daníel Þór Ingason útaf í síðasta leik og Stjarnan mun vera út í Eyjar og vinna heimamenn.
Síðasti séns Selfoss í deildinni? Það eru menn þarna úti sem vilja meina það. Þeir sitja á botni deildinnar með 1 stig meðan HK er sæti fyrir ofan þá með 4 stig. Það er því núna eða aldrei fyrir Selfyssinga ef þeir ætla að vera með í Olís deildinni í vetur. HK virtust vera hvíla sig gegn Haukum á miðvikudaginn þar sem þeir töpuðu með 15 mörkum. Þeir bíta í skjaldarrendur í lokaleik umferðinnar og vinna Selfyssinga og skilja þá eftir eina og yfirgefna á botni deildinnar.
2.umferð (4 réttir)
3.umferð (4 réttir)
4.umferð (1 réttur)
5.umferð (5 réttir)
6.umferð (4 réttir)
7.umferð (4 réttir)
8.umferð (5 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.