Arnar tilkynnir EM hópinn á morgun – Þessar koma til greina
IHF

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins mun á morgun, föstudaginn 30. október, tilkynna lokahóp sinn fyrir Evrópumótið sem fram fer í desember.

Alls hafa 35 leikmenn verið skráðir á svokallaðan 35 manna lista hjá Handknattleikssambandi Evrópu (EHF) og getur Arnar einungis valið leikmenn úr þeim hópi fyrir mótið.

Handknattleikssamband Íslands hefur boðað til blaðamannafundar í höfuðstöðvum Arion banka á morgun klukkan 12:15 þar sem Arnar mun kynna leikmannahópinn sem heldur á Evrópumótið. Gera má ráð fyrir að Arnar velji 18–19 leikmenn í lokahópinn en endanlegur fjöldi kemur í ljós á morgun.

Handkastið hefur enn ekki fengið boð á blaðamannafundinn en væntanlega er um mannleg mistök að ræða. Á 35 manna listanum má finna bæði reynslumiklar landsliðskonur og yngri leikmenn sem hafa verið að banka á dyrnar hjá A-landsliðinu.

Ísland leikur í Rúmeníu

Evrópumótið fer fram dagana 3.–20. desember og verður haldið í fimm löndum, Rúmeníu, Póllandi, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi.

Ísland leikur í A-riðli ásamt Ungverjalandi, Svartfjallalandi og Slóveníu. Allir þrír leikir íslenska liðsins í riðlakeppninni fara fram í Oradea í Rúmeníu.

Leikjadagskrá Íslands (íslenskur tími):

  • Fimmtudaginn 3. desember kl. 16:30 – Slóvenía–Ísland
  • Laugardaginn 5. desember kl. 16:30 – Svartfjallaland–Ísland
  • Mánudaginn 7. desember kl. 19:00 – Ísland–Ungverjaland

Tvö efstu lið riðilsins komast áfram í milliriðlakeppnina sem fer fram í Cluj-Napoca í Rúmeníu.

35 manna hópurinn:

Markverðir:

Hafdís Renötudóttir (Valur)

Sara Sif Helgadóttir (Haukar)

Andrea Gunnlaugsdóttir (Grótta)

Daníela Sara Björnsdóttir (HK)

Ethel Gyða Bjarnasen (Fram)

Útileikmenn:

Elín Klara Þorkelsdóttir (IK Sävehof)

Ásthildur Þórhallsdóttir (Valur)

Lena Margrét Valdimarsdóttir (Fram)

Lovísa Thompson (Benfica)

Thea Imani Sturludóttir (Craiova)

Embla Steindórsdóttir (Haukar)

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir (Haukar)

Sonja Lind Sigsteinsdóttir (Haukar)

Leandra Salvamoser (HK)

Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín (Thüringer)

Elín Rósa Magnúsdóttir (HSG Blomberg-Lippe)

Katla María Magnúsdóttir (Valur)

Díana Dögg Magnúsdóttir (HSG Blomberg-Lippe)

Matthildur Lilja Jónsdóttir (ÍR)

Inga Dís Jóhannsdóttir (Rødovre)

Katrín Tinna Jensdóttir (HH Elite)

Andrea Jacobsen (ÍBV)

Ásdís Halla Hjarðar (ÍBV)

Sara Dögg Hjaltadóttir (ÍR)

Birna Berg Haraldsdóttir (ÍBV)

Dana Björg Guðmundsdóttir (Larvik)

Rakel Oddný Guðmundsdóttir (Haukar)

Sandra Erlingsdóttir (ÍBV)

Elísa Elíasdóttir (Valur)

Hulda Hrönn Bragadóttir (Selfoss)

Katrín Anna Ásmundsdóttir (Fram)

Alexandra Líf Arnarsdóttir (Haukar)

Perla Ruth Albertsdóttir (Selfoss)

Lilja Ágústsdóttir (Zwickau)

Emilía Ósk Aðalsteinsdóttir (Selfoss)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top