Oft er sagt að ekki eigi að reyna að endurvekja hið liðna, enda sé það ógerlegt. Þó koma reglulega fram leikmenn þar sem glittir í takta, ákefð og að sumu leyti eiginleika fornra kappa. Sverre Jakobsen og Ingimundur Ingimundarson eru órjúfanlegur hluti af glæstasta tímabili A-landsliðs karla og allar götur síðan þeir lögðu skóna á hilluna hafa íslenskir handboltaáhugamenn beðið eftir svipuðum leikmönnum; hreinræktuðum varnarmönnum og stríðsmönnum sem eru í senn hjarta varnarinnar og límið sem heldur miðjublokkinni saman. En gætu slíkir leikmenn þegar verið komnir fram á sjónarsviðið? Gæti verið að næstu Sverre og Ingimundur séu þegar að spila í Olísdeildinni? Í dag skera tvö nöfn sig úr í deildinni þegar rýnt er í varnartölfræði HBStatz Insider, þeir Ingvar Dagur Gunnarsson (FH) og Darri Aronsson (Haukum). Ingvar Dagur leiðir deildina með varnareinkunnina 8,88 og Darri fylgir fast á eftir með 8,50. Þar sem Ingvar er aðeins tvítugur og Darri 27 ára er ljóst að báðir eiga nóg inni og geta bætt sig enn meira. Ingvar Dagur er línumaður að upplagi, rétt eins og Sverre Jakobsen var. Hann hefur þegar sýnt að hans stærsta hlutverk gæti legið í miðri vörninni. Sverre þróaðist einmitt yfir í að verða afburðavarnarmaður og var um árabil helsti burðarásinn í mögnuðum varnarleik landsliðsins. Darri Aronsson er skytta að upplagi, líkt og Ingimundur Ingimundarson. Á sínum ferli varð Ingimundur einn traustasti og mikilvægasti varnarmaður landsliðsins, líkamlega sterkur, hreyfanlegur og ávallt tilbúinn í skítverkinn. Darri hefur sýnt marga af sömu eiginleikum og tölfræðin undirstrikar hversu öflugur varnarmaður hann er orðinn. Tölfræði HBStatz sýnir svo ekki verður um villst hversu afburðagóðir varnarmenn þessir tveir leikmenn eru. Ingvar Dagur er með 5,89 lögleg stopp að meðaltali í leik, einn stolinn bolta, 1,33 varin skot og 0,55 varnarfráköst. Darri er skammt undan með 5,67 lögleg stopp, einn stolinn bolta og eitt varið skot að meðaltali í leik. Það sem vekur ekki síður athygli er aginn því þrátt fyrir að vera í miklum átökum í miðri vörninni hafa þeir aðeins tvisvar sinnum hvor fengið tveggja mínútna brottvísun það sem af er tímabili. Ákefðin fer því greinilega saman við aga. Þá hefur Ingvar í átta af níu leikjum í deild og bikar fengið hæstu varnareinkunn leiks og Darri fimm sinnum. Þótt nútímahandboltinn verði sífellt hraðari og gerð sé ríkari krafa um að leikmenn geti leyst mörg hlutverk inni á vellinum, þá eru sérhæfðir varnarmenn enn afar mikilvægir hlekkir innan liða sinna. Þar má meðal annars nefna Thiagus Petrus, Karl Konan, Patrik Ligetvári, Blaž Blagotinšek, Dragan Pechmalbec og Adrian Sipos. Hinn sérhæfði varnarmaður er því alls ekki í útrýmingarhættu. Ingvar Dagur verður í eldlínunni í Olísdeildinni í kvöld þegar FH tekur á móti KA í Kaplakrika og Darri verður á sínum stað í vörninni þegar Haukar fá HK-inga í heimsókn á Ásvellina, sömuleiðis í kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.